13. október 2007 klukkan 14:49
heyrst hefur að eiðfaxamenn séu að leita að bloggurum hér norðan heiða og vilja gjarnan einhverja innan skólanns i verkið. okkur sveinum varð að orði hvort það væri ekki rétt að innleiða eiðfaxa undir sveina síðuna, þar sem við erum i stöðugri uppsveiflu og munar nú lítið um að hafa hann faxa gamla undir sama hatti.
annars gott að frétta magnað bingó kvöld i gær þar sem okkar maður Sören danski kom sá og sigraði tók alls 3 vinninga með tilþrifum.
kveðja sveinfaxar
Hólasveinar07
11. október 2007 klukkan 20:23
Hættu að kjósa sjálfan þig.
kveðja sveinarnir
Hólasveinar07
11. október 2007 klukkan 20:19
Nú fengu sveinarnir sér loksins bjór, en að sjálfsögðu bara í hófi því skóli er á morgun og allir verða að vera allsgáðir. Annars er bara allt gott að frétta af sveinunum og frekar lítið skeð og flestir hangið á allavega halda þeir því fram???
Hólasveinar07
10. október 2007 klukkan 13:30
Vá þetta er fræðilegasta fyrirsögn sem hér hefur komið fram. En áfram halda tamningar bæði á trippum og þjálfunarhestum og nánast enginn tími fyrir óreglu á kvöldin eða um helgar. Anton(io) batt svo um hnútana um síðustu helgi að ekki var tekinn flipi af bauk því öll orka og einbeiting fór í að lesa og skrifa úrdrátt upp úr bók á útlensku, og það er ekkert manns sterkasta grein, þe útlenska. En þetta gengur nú bara nokkuð vel hjá okkur og er farið að slá í á trippunum úti og mikið fjör. Gleðifréttir dagsins og held bara vikunnar eru þær að Haukur hólasveinn, ekki hreinn sveinn er risinn úr rekkju og mættur í skólann, en kall greyið er búin að vera rúmfastur það sem af er vikunnar, og er það ekki vegna drykkju, heldur bara flensa. Við kjósum að kalla það drykkjuleysi. Svona getur lærdómurinn komið í hausinn á manni að það gefst enginn tími til að slappa af yfir einum bauk, og þá hleypur flensa í Hauk.
Kveðja af efri hæðinni á bókasafninu, þe tölvustofunni :)
Hólasveinar07
02. október 2007 klukkan 17:46
Já nú á að fara að taka út þjálfunarhestana hér hjá okkur á morgunn og næsta dag, enginn annar en Atli Guð ætlar að mæta og taka hrossin til kostanna. Svo eru líka að bresta á tryppaútríðingar en ætli það detti ekki í það á morgunn. Það verður nú eitthvað fjör og líklega einhverjir sem kyssa fósturjörðina, alla vega má alveg reikna með því. En nú eru allflestir að ná sér eftir svera helgi og jafnvel einhverjir farnir að huga að þeirri næstu.
Einu tókum við þó eftir í morgun og er það mikil breyting frá því í fyrra, þegar Eysteinn kom inn í stofu og var bara almennilegur við okkur og engin læti, og rædd voru moksturs og úthleypingarmál... tja batnandi mönnum er ............. æ þið vitið

kveðja frá sveinunum síkátu.........
Hólasveinar07
24. september 2007 klukkan 22:25
Jæja þá erum við að detta í 6000 heimsóknir á síðuna ogfær sá 6 þúsundasti bjór frá okkur :) En endilega takið þátt í skoðunarkönnunnunni (vá mörg n) þegar þið kíkið á okkur.
Ætli það séu fleiri en Heimsi brókarlausir...... nee bara djók
Hólasveinar07
24. september 2007 klukkan 17:53
Bæði hestar og menn komu vel undan helgi, og margir búnir að hugsa sinn gang til betri vegar vonum við. enn það sást ein og ein skvetta sem alveg voru klett sitnar. enn það sem spáð var í dag var hvort heimirinn hafi farið í kaupféilagið og fjárfest í brókum um helginna allvega í bókum, það sást í morgun enda var stíft glósað yfir Benna myndbandinu, á meðan aðrir hálfdormuðu. en við við hinir erum allavega í brók sem verða vel gyrtar í fyrramálið enda er von á Antoni í bítið i fyrramálið að taka út stöðunna eftir gott helgarfrí.
kveðja brókuðu sveinarnir
Hólasveinar07
20. september 2007 klukkan 18:03

skyld'ann hafa lent svona....
Hólasveinar07
20. september 2007 klukkan 17:14
þau váglegu tíðindi bárust frá Brúnastöðum eftir hádegið að fyrsti sveinninn hefði ákveðið að fara aðra leið enn reiðskjótinn hans. enda hélt hún grána gamla að hún væri fokker flugvél á leið í loftið mið mikilum tilþrifum.annars gekk dagurinn glatt fyrir sig og sáu fyrstu trippin skeifur og var alveg víga fótaburður á eftir hjá flestum. en sveinar vöknuðu upp við vondan draum í morgun þegar byrjað var kynna fyrir okkur þessa heimildarritgerð sem á að fara hamast í að gera.
kveðja sveinkarnir
Hólasveinar07
19. september 2007 klukkan 18:24
að gefnu tilefni!!!
gengur Heimirinn í nærbuxum??
Hólasveinar07